Já helgina 15.-17. júní erum við að tala um Akureyri.
Dagskrá Bíladaga er svona:
-15. júní: Burnout keppnin +
fyllbert
-16. júní: Götuspyrnan (þar sem engin annar
en Tryggvi nokkur Sæmunds. mun trylla lýðinn á sínum eðal Mercedes
Benz
+ fyllbert
-17. júní: Bílasýning + þynnka og
heimferð.
Þeir sem ég veit að ætla að fara eru: Ég, Bexy, Tryggvi,
Kristín, Oddur, Hildur, Diddi, og væntanlega Sirrý, Gummi Key og
væntanlega Gyða, Kjartan, vitleysingarnir (Hjalti og Gvendur
Ólafs.) Man ekki eftir fleirum í beli. En hvað með Helgus??? Hún
hlýtur að koma líka.
En ég held að það sé alveg málið að við reynum að búa til smá
svona tjaldbúðir, smá svona Borgfirskt hverfi þarna á tjaldstæðinu
Það gerðum við allavega í fyrra. Vorum reyndar algjörlega
umkringd af L2C liði í netabolum og bleikum skyrtum sem ætluðu að
drepa allt og alla. Við ættum kannski að reyna að vera svona aðeins
í burtu í þetta skiptið 
Ég, Oddur og vitleysingarnir vorum svona að pæla hvort að það
væri ekki alveg málið að leggja af stað svona eitthvað um hádegi á
föstudeginum. Og vera jafnvel í floti....
Hvað segir krúið um það ???